Nýjasta kvikmyndin um Leðurblökumanninn The Dark Knight er ein af 10 bestu myndum ársins 2008 að mati Bandarísku kvikmyndastofnunarinnar (American Film Institute).
Leikna heimildarmyndin Milk, með Sean Penn í aðalhlutverki, teiknimyndin Wall-E og The Curious Case of Benjamin Button, með Brad Pitt í aðalhlutverki, eru einnig á listanum.
Gran Torino í leikstjórn Clint Eastwoods, ofurhetjumyndin Iron Man, Frost/Nixon, The Wrestler og óháðu myndirnar Frozen River og Wendy and Lucy þykja einnig vera meðal bestu mynda ársins.
Dómnefndina skipa kvikmyndagerðarmenn, gagnrýnendur og fræðimenn.
Ólíkt mörgum öðrum skipar AFI ekki kvikmyndunum í neina sérstaka röð eða velur hver af myndunum 10 sé best.
Kvikmyndagerðarmennirnir sem standa á bak við myndirnar 10 verða heiðraðir við hátíðlega athöfn sem fram fer 9. janúar nk.