Græna ljósið og Alliance Française, í samstarfi við sendiráð Frakklands, Belgíu og Kanada, halda franska kvikmyndahátíð 16. - 29. janúar í Háskólabíói.
Hátíðin er nú haldin í 9. sinn en í ár verða frumsýndar 10 myndir á frönsku frá þremur löndum, átta frá Frakklandi, eina frá Belgíu og eina frá Kanada.
Opnunarmyndin er Skólabekkurinn, sem sigraði Gullpálmann á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Meðal annarra mynda má nefna Refurinn og barnið eftir Íslandsvininn Luc Jacquet, leikstjóra myndarinnar Ferðalag keisaramörgæsanna, sem sló svo eftirminnilega í gegn um um allan heim fyrir nokkrum árum. Jacquet verður viðstaddur frumsýningu myndarinnar, að því er segir í fréttatilkynningu.