Bandaríska söngkonan Rihanna er nú sögð vera að slá sér upp með körfuboltakappanum Andrew Bynum, sem leikur með Los Angeles Lakers.
Mikið hefur verið fjallað um einkalíf söngkonunnar í fjölmiðlum í Bandaríkjunum frá því þáverandi kærasti hennar söngvarinn Chris Brown var ákærður fyrir grófa líkamárás á hana í febrúar. Var Rihanna upphaflega sögð ætla að gefa Brown annað tækifæri eftir atvikið en síðan eru þau sögð hafa ákveðið að slíta sambandi sínu.
„Þau litu sannarlega út fyrir að vera par, þar sem þau sátu mjög þétt saman í bílnum,” segir ónefndur heimildarmaður slúðursíðunnar X17. Þá eru þau sögð hafa borðað saman á veitingastaðnum Mastro's Steakhouse í Beverly Hills á föstudag.
Áður hefur Chris sést í fylgd söngkonunnar Natalie Mejia og þykir hún hafa gefið í skyn að sögusagnir um samband þeirra eigi við rök að styðjast.
„Hlutirnir ganga vel hjá okkar en ég vil í raun ekki segja meira um það í bili,” sagði Mejia er hún var spurð um meint ástarsamband þeirra.