Söngkonan Britney Spears er hundaaðdáandi en stóðst ekki mátið og keypti sér páfagauk í vikunni.
Í nógu er að snúast hjá söngkonunni en hún lauk hluta tónleikaferðar sinnar í Las Vegas síðustu helgi. Þrátt fyrir annir gefur hún sér þó tíma til að sinna hundunum sínum. Fór hún að versla hundamat en kom þá auga á páfagauka í gæludýraversluninni og heillaðist upp úr skónum. Yfirgaf hún því búðina með hundafóður og páfagauk. Ekki fylgir sögunni hvort gaukurinn hafi komið sér fyrir á öxl söngkonunnar við þetta tækifæri eða hvort hann væri búinn að læra einhverja popptexta hennar.