Leikarinn Mel Gibson varð faðir í áttunda skiptið á föstudaginn er hann og unnusta hans, Oksana Grigorieva, eignuðust stúlku. Bæði móður og barni heilsast vel ef marka má slúðurvefi en stúlkan átti ekki að koma í heiminn fyrr en í desember.
Mel Gibson á sjö börn með fyrrum eiginkonu sinni, Robyn, og Oksana Grigorieva á soninn Alexander, með fyrrum unnusta, Timothy Dalton,
sem m.a. lék hlutverk James Bond um tíma.
Gibson, sem er 53
ára, tilkynnti í maí að sambýliskona hans væri barnshafandi.
Fréttavefurinn RadarOnline skýrði frá því í dag að Grigorieva, sem er
39 ára, hefði eignast dóttur á föstudag, nokkrum vikum fyrir tímann.
Gibson hefur skýrt frá því, að hann og eiginkona hans hafi skilið að borði og sæng fyrir þremur árum, skömmu eftir að hann var handtekinn í Kalíforníu fyrir ölvunarakstur. Hann baðst í kjölfarið opinberlega afsökunar og fór í áfengismeðferð.
Hann
sagði sjónvarpsmanninum Jay Leno, að hann hefði hitt Grigorievu árið
2008 þegar hún var að taka upp plötu, sem kom út á þessu ári.
Grigorieva er fyrrum fyrirsæta en er nú söngkona og píanóleikari.