Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 19.11.2009
| 12:45
Eitthvað gott í vændum
Leikritið Rautt brennur fyrir eftir Heiðar Sumarliðason verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld en titillinn er fornt, íslenskt orðtak og merkir að einhvers góðs megi vænta. Verkið var útskriftarverkefni Heiðars á brautinni Fræðum og framkvæmd við Listaháskóla Íslands í fyrra en það er jafnfram fyrsta leikrit hans sem sett er upp í atvinnuleikhúsi.
Í verkinu segir af Maríu og Kristjáni sem við fyrstu sýn virðast vera ósköp venjulegt par. Ókunnugur maður brýst inn hjá Kristjáni og í kjölfarið áttar Kristján sig á því að undir sléttu yfirborðinu leynast ógnvænlegir hlutir og að fólk er ekki allt þar sem það er séð. Fjórir ungir leikarar leika í leikritinu, þau Jörundur Ragnarsson, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Dóra Jóhannsdóttir. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









