Einbeitingin skín úr augum Sigurðar Heiðars Höskuldssonar sem sést hér munda kjuðann. Sigurður hóf, ásamt félaga sínum Inga Þór Hafdísarsyni, á öðrum degi páska tilraun til að slá heimsmet í ballskák.
Hyggjast þeir standa við borðið til hádegis á fimmtudag eða í 72 klukkustundir alls.
Hægt er að heita á þá Sigurð og Inga Þór í síma 568-8620 en allur ágóðinn mun renna til styrktar MS-félagi Íslands. Félagi þeirra, Brynjar Valdimarsson, greindist nýlega með MS-sjúkdóminn, og gripu þeir því til þessa ráðs til að vekja athygli á sjúkdómnum.