Veröld/Fólk
| mbl
| 9.6.2010
| 14:45
Heidi og Spencer skilja
Heidi Montag sótti um lögskilnað frá Spencer Pratt fyrir dómshúsi Santa Monica í gær. Hin tuttugu og þriggja ára gamla stjarna vísaði til óleysanlegs ágreinings á lögskilnaðarpappírunum.
Samkvæmt lögum Kaliforníu merkir lögskilnaður að allar tekjur hennar verða hennar eigin, skildar að frá tekjum eiginmannsins frá þeim tíma sem lögskilnaðurinn tekur gildi. Í hluta lögskilnaðarpappíranna sem nefnist ‘sameiginlegar eigur og skuldir’ skrifaði Heidi “Engar slíkar eignir né skuldir”.
Öllum sem fylgjast með the Hills ætti að vera ljóst að þróunin í skapferli Spencer hefur átt stóran hlut að máli en hann varð skyndilega afar meinfýsinn við skyldmenni sín og fólkið í kringum sig í sama mund og honum ágerðist söfnunarárátta fyrir kristöllum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









