Í skemmtiferð sem glamúrdrottningin Vala Grand fór til Ólafsfjarðar fyrir skömmu voru óprútnir piltar sem stofnuðu pott þar sem fé var heitið þeim sem sængaði hjá Völu. Vala brást ókvæða við þessu ósiðlega boði eins og sjá má í nýjasta þætti af Veröld Völu Grand sem nálgast má hér.
Í þættinum er einnig fylgst með því þegar Vala fagnar áramótunum á sinn einstaka hátt og innilegum vangadansi hennar við dverg.