Leikarinn Law Lok-Lam var heldur óheppinn í síðustu viku er handritshöfundar sjónvarpsþátta í Hong Kong fengu allir svipaða hugmynd um örlög persóna hans.
Á sunnudagskvöldinu lést persóna Lok-Lam í þættinum Grace Under Fire í blóðugum bardaga og sama kvöld lést persóna hans í þættinum Fate To Fate.
Daginn eftir létust persónur Lok-Lam í þáttunum Police Station No.7, Relic Of An Emissary og Virtues Of Harmony.
Lok-Lam segist ekki taka öllum andlátunum nærri sér og bendir á að hann stjórni ekki handritsgerð þáttanna. Hann hafi þó verið einstaklega óheppinn að vera tekinn úr öllum þáttunum í einu.