Veröld/Fólk
| mbl
| 10.5.2011
| 13:40
Hafa ekki húmor fyrir Næturvaktinni
Þeim bresku gagnrýnendum, sem fjallað hafa um fyrsta þátt Næturvaktarinnar, sem breska ríkisútvarpið BBC sýndi í gærkvöldi, þótti hann ekki sérstaklega fyndinn.
Graeme Thomson skrifar talsvert langan pistil um Næturvaktina á vefinn theartsdesk.com og segir að þótt þetta séu margverðlaunaðir gamanþættir á Íslandi hafi lítið verið hægt að hlæja að þeim. Brandararnir hafi verið þunnir og aðalpersónan, Georg, hafi ekki verið nægilega viðkunnanlegur eða vanmáttugur skúrkur til að vera fyndinn til lengdar.
Í ljósvakapistli í blaðinu Independent fjallar Brian Viner stuttlega um Næturvaktina og segir að þeir sem búi í Reykjavík þyki hún án efa verulega fyndinn. „En það fannst mér ekki," segir hann.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen









