Hafnaði stefnumóti með Íslandsvini

Minka Kelly
Minka Kelly

Friday Night Lights-skutlan Minka Kelly hafnaði nýverið tilboði Íslandsvinsins Jake Gyllenhaal þegar hann bauð henni á stefnumót.

Leikkonan, sem er 31 árs, hætti með Derek Jeter í ágúst en þau höfðu verið saman um langt skeið.

„Heimildir herma að Kelly hafi afþakkað boð Gyllenhaal þegar hann bauð henni á stefnumót síðastliðið haust,” segir í frétt Us Weekly.

Samkvæmt heimildarmanni var Kelly að reyna að endurvekja neistann á milli sín og hafnarboltamannsins Jeter þegar Gyllenhaal óskaði eftir nærveru Kelly.

Hún ákvað að einbeita sér að fyrrverandi elskhuga sínum en það virðist hafa verið rétt ákvörðun hjá henni því talið er að Kelly og Jeter hafi hist skömmu fyrir jólin.

Gyllenhaal er enn einhleypur þrátt fyrir að hafa verið kenndur við nokkrar konur í gegnum tíðina. Samband hans og Reese Witherspoon tók enda árið 2009 en þá fann hann ástina í örmum Taylor Swift.

Nýverið var Gyllenhaal sagður eiga í ástarsambandi við Rashida Jones og Olivia Wilde.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant