Ljóðelskir Kópavogsbúar á öllum aldri

Mynd 1 af 3
Þrettán grunnskólabörn sem hlutu viðurkenningu fyrir ljóð sín.

Hallfríður J. Ragnheiðardóttir hlaut í dag Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt Triptych í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Hallfríður er ellefti handhafi verðlaunanna en tilgangur samkeppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist. 

Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum nú síðdegis á fæðingardegi Jóns úr Vör, 21. janúar. Á sama tíma voru úrslit kynnt í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Þau sem urðu í þremur efstu sætunum eru Katrín Kemp úr Vatnsendaskóla fyrir ljóðið Vetrarkvöld, Hrönn Kristey Atladóttir úr Hörðuvallaskóla fyrir ljóðið Skógarljóð og Ólafur Örn Ploder úr Álfhólsskóla fyrir ljóðið Bolti. 

Ljóð sem óx við hvern lestur

Um 350 ljóð bárust í samkeppnina Ljóðstafur Jóns úr Vör undir dulnefni og vissi dómnefnd því ekki hver var höfundur fyrr en sigurljóðið hafði verið valið. Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að ljóðið sé ort af öryggi og krafti og ásamt tilvísunum sé það borið upp af sterku myndmáli og markvissri uppbyggingu.

„Þetta var ljóð sem dómnefndin kom að aftur og aftur, það óx við hvern lestur,“ segir m.a. í rökstuðningnum. Ragnheiður hlaut peningaverðlaun og Ljóðstaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu, til varðveislu í eitt ár. Auk þess hlaut hún eignargrip sem Sigmar Maríusson gullsmiður hannaði. Þrettán grunnskólabörn fengu bókaverðlaun fyrir ljóð sín í grunnskólakeppninni en yfir sextíu ljóð bárust frá sex skólum í Kópavogi.

Grunnskólakeppnin verður árleg

Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri afhenti verðlaunin og Hafsteinn Karlsson, formaður menningar- og þróunarráðs, ávarpaði gesti, og fór yfir sögu keppninnar sem kennd er við skáldið Jón úr Vör og markmið hennar. Þá sagði hann stefnt að því að grunnskólakeppnin yrði árleg hér eftir.

Dómnefnd í ár skipuðu Gerður Kristný, ljóðskáld og rithöfundur, Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og Sigurður Pálsson, ljóðskáld og rithöfundur. 

Eftirfarandi grunnskólabörn fengu viðurkenningu í grunnskólakeppninni:

Anna Margrét, Vatnsendaskóla
Steingrímur Bersi, Vatnsendaskóla

Fanney Einarsdóttir, Lindaskóla

Selma M. Gísladóttir, Hörðuvallaskóla

Róbert Atli Svavarsson, Lindaskóla

Baldvin Snær, Vatnsendaskóla

Anna Margrét Soussounis, Hörðuvallaskóla

Katrín Þóra Hermannsdóttir, Kársnesskóla

Lilja Lind Helgadóttir, Kársnesskóla
Líney Ragna Ólafsdóttir, Salaskóla 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Aukasýning GusGus og dansflokksins

GusGus.
Í gær, 23:51 Mikil miðasala hefur verið á atburði Listahátíðar, sem hefst í Reykjavíkurborg föstudaginn 18. maí. M.a. var aukasýningu bætt við sýningu Íslenska dansflokksins og GusGus, sem fram fer í Hörpu um helgina, vegna mikillar aðsóknar.Tónleikar Arcadi Volodos og söngkonunnar Buiku eru líka að seljast upp. Meira »

Erfitt að halda andliti nálægt Cohen

Ein af myndunum sem Hanna Guðrún notar til að koma sér á framfæri þegar hún ...
Í gær, 23:37 „Þetta var einn áhugaverðasti dagur sem ég hef verið á setti hingað til verð ég að segja," segir Hanna Guðrún Halldórsdóttir, nýútskrifaður leikari í Los Angeles, sem fer með bakgrunnshlutverk í nýjustu kvikmynd Sacha Baron Cohen, The Dictator. Hún segir erfitt að halda andliti nálægt Cohen í ham. Meira »

Morðhótanir ræddar yfir morgunmatnum

Isla Fisher og Sacha Baron Cohen.
Í gær, 23:44 Isla Fisher lifir engu venjulegu lífi með Sacha Baron Cohen.  Meira »

Blekktu neytendur með skóauglýsingum

Kim Kardashian kom fram í auglýsingum fyrir skóna frá Skechers.
Í gær, 23:27 Bandaríski skóframleiðandinn Skechers þarf að greiða jafnvirði rúmra fimm milljarða króna fyrir að hafa blekkt neytendur. Fyrirtækið hélt því fram að skótegund sem það framleiðir gæti hjálpað til að tóna þjóhnappa þeirra sem gengu í þeim auk þess að hjálpa þeim að grennast. Meira »

finnur.is