Bridget lokar dagbókinni í bili
Fréttir bárust af því í vikunni að tökum á þriðju myndinni þar sem segir frá ástum og sigrum hinnar stórkostlegu Bridget Jones, hefði verið frestað. Óttuðust aðdáendur fröken Bridgetar að nú væri illt í efni, þar sem fréttst hafði að Hugh Grant væri hættur við þátttöku sína í verkefninu.
Þeir geta þó andað léttar. „Við erum enn að vinna að handritinu og höfum því þurft að fresta tökum,“ sagði annar framkvæmdastjóra Working Title kvikmyndafyrirtækisins, Tim Bevan, í tilkynningu. „Myndin er þó ennþá í burðarliðnum.“
Seinna sannaðist þó að þar sem er reykur, er sannarlega eldur.
„Hugh er mjög áhugasamur um að Bridget Jones 3 verði að veruleika en hann, Renee og Colin hafa öll gert athugasemdir við handritið. Þau vonast til þess að geta hjálpað þeim með það,“ sagði í tilkynningu frá talsmanni breska sjarmatröllsins.
Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem Grant lýsir yfir efasemdum um ágæti þess að gera þriðju myndina, því árið 2009 sagðist ekki halda að hann myndi taka þátt ef gerð yrði ein mynd til viðbótar.
„Ég held ekki nei. Ég meira að segja held að Bridget Jones 2 hafi verið mistök, ef ég á að vera alveg hreinskilinn,“ sagði hann. „Handritið var ekki gott og barðist á móti því í langan tíma, líka Colin og Renee. En við vorum eiginlega plötuð í það,“ sagði Grant.
Aðalleikararnir þrír; Grant, Colin Firth og Renee Zellweger, hafa þó getað huggað sig við launatékkann en fyrsta myndin halaði inn um 282 milljónum dollara og sú seinni 263 milljónum dollara.
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen









