Drottning í sextíu ár

Það stóð aldrei til að Elísabet Alexandra María, elsta dóttir hertogans af York myndi leika sérstaklega stórt hlutverk í bresku konungsfjölskyldunni. En röð atburða varð til þess að aðeins 27 ára gömul var hún krýnd drottning.

Þegar hún fæddist í apríl árið 1926 var föðurbróðir hennar krónprins breska konungsveldisins. En er röðin kom að frændanum ákvað hann að staldra aðeins stutt við á valdastóli og afsalaði sér krúnunni til að giftast ástkonu sinni. Sú hét Wallis Simpson, bandarísk og tvífráskilin.

Þá var allt önnur og ný staða komin upp og faðir Elísabetar gerður að konungi. Elísabet varð krónprinsessa.

Faðir hennar lést í febrúar árið 1952. Elísabet var þá stödd lengst upp í fjöllum í nýlendunni Keníu en þangað voru henni fluttar fréttirnar.

Í júní sama ár var hún krýnd drottning. Nokkuð var gagnrýnt í fyrstu hversu ung og óreynd hún væri en ekki leið á löngu þar til þjóðin tók hana í sátt.

Hún og eiginmaður hennar, Philip prins, eignuðust fjögur börn. Framtíðin virtist björt fyrir breska konungsveldið. Konungsfjölskyldan var mjög í sviðsljósinu og tímarnir breyttust hratt. Tvö hjónabönd í stórfjölskyldunni fóru út um þúfur og ekki dró úr athygli fjölmiðla er sjálfur ríkisarfinn, Karl, skildi við eiginkonuna Díönu að borði og sæng.

Ofan á allt saman skemmdist svo eftirlætisíverustaður drottningar, Windsor-kastali, í eldsvoða. Kallaði Elísabet árið 1992 „annus horribilis“, eða hörmulega árið.

En 21. öldin byrjar farsællega hjá konungsfjölskyldunni. Vilhjálmur prins, sonur Karls, gekk að eiga Kate Middleton á síðasta ári og er talið að tveir milljarðar manna hafi fylgst með brúðkaupinu í sjónvarpi.

Elísabet hefur reynst frumkvöðull á ýmsum sviðum. Hún er sú fyrsta í sinni fjölskyldu til að fara í opinbera heimsókn til páfans og sú fyrsta til að fara í opinbera heimsókn til Írlands síðan það hlaut sjálfstæði árið 1921. Þá hefur hún hitt alla forseta Bandaríkjanna frá því hún tók við völdum fyrir utan Lyndon B. Johnson.

Drottningin er nú 86 ára gömul og er enn í fullu fjöri. Hún hefur ríkt í Bretlandi í 60 ár en hefur þó ekki setið lengst. Metið á kynsystir hennar og langalangamma eiginmannsins, Viktoría drottning.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Aukasýning GusGus og dansflokksins

GusGus.
Í gær, 23:51 Mikil miðasala hefur verið á atburði Listahátíðar, sem hefst í Reykjavíkurborg föstudaginn 18. maí. M.a. var aukasýningu bætt við sýningu Íslenska dansflokksins og GusGus, sem fram fer í Hörpu um helgina, vegna mikillar aðsóknar.Tónleikar Arcadi Volodos og söngkonunnar Buiku eru líka að seljast upp. Meira »

Erfitt að halda andliti nálægt Cohen

Ein af myndunum sem Hanna Guðrún notar til að koma sér á framfæri þegar hún ...
Í gær, 23:37 „Þetta var einn áhugaverðasti dagur sem ég hef verið á setti hingað til verð ég að segja," segir Hanna Guðrún Halldórsdóttir, nýútskrifaður leikari í Los Angeles, sem fer með bakgrunnshlutverk í nýjustu kvikmynd Sacha Baron Cohen, The Dictator. Hún segir erfitt að halda andliti nálægt Cohen í ham. Meira »

Morðhótanir ræddar yfir morgunmatnum

Isla Fisher og Sacha Baron Cohen.
Í gær, 23:44 Isla Fisher lifir engu venjulegu lífi með Sacha Baron Cohen.  Meira »

Blekktu neytendur með skóauglýsingum

Kim Kardashian kom fram í auglýsingum fyrir skóna frá Skechers.
Í gær, 23:27 Bandaríski skóframleiðandinn Skechers þarf að greiða jafnvirði rúmra fimm milljarða króna fyrir að hafa blekkt neytendur. Fyrirtækið hélt því fram að skótegund sem það framleiðir gæti hjálpað til að tóna þjóhnappa þeirra sem gengu í þeim auk þess að hjálpa þeim að grennast. Meira »

finnur.is