Veröld/Fólk
| AP
| 7.2.2012
| 22:09
| Uppfært
22:42
Verk Taylor fóru á 2,7 milljarða
Þrjú listaverk úr safni leikkonunnar Elizabeth Taylor voru boðin upp hjá uppboðshúsinu Christie's í dag. Fóru verkin á um samtals 14 milljónir punda eða rúmlega 2,7 milljarða íslenskra króna.
Uppboðshaldarar segja að eitt verkanna, „Vue de l'asile de la Chapelle de Remy“ eftir Vincent van Gogh hafi verið slegið á tæpa tvo milljarða króna. Verkið hafði leikkonan hangandi á stofuvegg á heimili sínu í Bel Air. Þá seldust einnig verk úr safni Taylor eftir Edgar Degas og Camille Pissarro.
Stjórnarformaður uppboðshússins segir verkin þrjú djásnin í krúnu listaverkasafns leikkonunnar.
Elizabeth Taylor lést í mars á síðasta ári, 79 ára að aldri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen










