Bjóða brúðkaupsnóttina til sölu

Reuters

Þýskt par sem hyggst ganga í hjónaband á næstunni hefur boðið brúðkaupsnóttina til sölu á netinu. Boðið gengur út á að sá karlmaður sem tilbúinn sé að greiða fyrir það megi eyða brúðkaupsnóttinni með brúðinni.

Eftir að fjör færist í leikana hyggst hin 38 ára brúður hins vegar hringja í eiginmann sinn sem eigi þá að koma að henni og karlmanninum ókunna.

Þýska tímaritið Bild segir frá þessu óvenjulega tilboði í dag en birtist að sögn á vefsíðunni Gesext.de. Í umfjöllun þess segir að hugmyndin sé byggð á kvikmyndinni "Indecent Proposal" með Robert Redford og Demi Moore.

Fram kemur að um sé að ræða gamla fantasíu parsins sem það langi til þess að framkvæma en nokkuð sé um að slík tilboð birtist á netinu í Þýskalandi. Yfirleitt sé þó um að ræða fyrirkomulag þar sem aðeins fáir fyrirfram valdir einstaklingar geta tekið þátt en ekki bara hver sem er eins og í þessu tilfelli.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir