Vífilfell bauð gestum og gangandi upp á ókeypis Víking jólabjór í kvöld, en skilaboð þess efnis voru send út á facebooksíðu jólabjórsins fyrr í dag. Fyrirtækið hafði komið sér fyrir í leiguhúsnæði við Lækjartorg kl. 20 í kvöld og samkvæmt upplýsingum mbl.is var fjölmenni komið saman til að svala sínum jólabjórþorsta.
Margir tóku þarna forskot á sæluna því sala á jólabjór hefst ekki í vínbúðum ÁTVR fyrr en eftir um hálfan mánuð, eða fimmtudaginn 15. nóvember nk.