Í hádeginu var Evróvisjón-myndband okkar Íslendinga frumsýnt í höfuðstöðvum Vodafone en myndbandið er nú aðgengilegt öllum á eurovision.vodafone.is
Lagið Ég á Líf í flutningi Eyþórs Inga Gunnlaugssonar er framlag okkar í ár. Aðstandendur lagsins sögðu að við frumsýningu kæmi í ljós hvort þýða ætti textann yfir á ensku. Það er því nú opinbert að lagið verður flutt á íslensku í Evróvisjón-keppninni í Svíþjóð í maí.