Hljómsveitin Hjaltalín er sú fyrsta af yngri kynslóðinni til að halda sína eigin tónleika í Eldborgarsalnum í Hörpu. Það var greinilega ekkert ofmat því þéttskipað er í hvert sæti og gríðarleg stemning á tónleikunum sem standa nú yfir.
Aðaláhersla tónleikanna er á efni plötunnar Enter 4, en sveitin frumflytur líka nýtt efni á tónleikum. Ásamt Hjaltalín kemur fram strengjasveit og er öllu til tjaldað í ljósahönnun.
Hjaltalín sendi í gær frá sér nýtt myndband, það fimmta í röðinni við lag af Enter 4, en lætur þar staðar numið því nú eru upptökur hafnar á nýju efni.
Sjá einnig. Hjaltalín sótti í sarp Hemma Gunn