Fleiri Hollywoodstjörnur flæktar í málið

Maðurinn sem kært hefur Bryan Singer hér með lögmanni sínum …
Maðurinn sem kært hefur Bryan Singer hér með lögmanni sínum á blaðamannafundi á dögunum. Mynd/AFP

Lögfræðingur mannsins sem kært hefur Bryan Singer, leikstjóra kvikmyndarinnar X-Men, fyrir kynferðislega misnotkun segir að á næstu dögum muni koma í ljós að fleiri Hollywoodstjörnur eru flæktar í málið en áður hefur verið talið. 

Maðurinn sem kærði Singer var undir lögaldri þegar meint brot áttu sér stað. Segir lögfræðingur hans að misnotkunin eigi sér langa baksögu og sé hluti af stærri menningu á meðal frægra Hollywood-stjarna. 

„Drengnum var flogið í sundlaugapartý á Hawaii þar sem brotin áttu sér stað,“ segir lögfræðingurinn. Hann segist einnig hafa verið í samskiptum við fleiri menn sem vilja stíga fram með svipaðar sögur að segja. „Ég hef í mörg ár unnið að málum fórnarlamba kynferðislegrar misnotkunar en ég hef aldrei áður séð jafn skipulagða misnotkun og í þessu máli. Þetta eru allt karlmenn í Hollywood sem nýta stöðu sína og peninga til þess að misnota unga drengi,“ segir lögfræðingurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant