Peaches Geldof jörðuð í dag

Peaches Geldof.
Peaches Geldof. AFP

Talið er að Bob Geldof, faðir  Peaches Geldof, muni fara með minningarorð um dóttur sína í jarðarförinni sem fer fram í dag. Útförin er gerð frá St Lawrence kirkju í þorpinu Davington í Kent. Peaces giftist barnsföður sínum, Tom Cohen, í þeirri kirkju árið 2012. Útför móður hennar, Paulu Yates, fór einnig fram frá þeirri kirkju árið 2000. Þá gengu Bob Geldof og Paula Yates einnig í hjónaband í þessari kirkju árið 1986.

Enn er dauði Peaches mikil ráðgáta en hún lést á heimili sínu 7. apríl. Ekki er þó talið að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Krufning leiddi ekkert afgerandi í ljós en eiturefnagreining hefur enn ekki verið gert opinber.

Peaches átti tvo syni, Astala 23 mánaða og Phaedra, 11 mánaða. Hún var sjálf 11 ára er móðir hennar lést úr of stórum skammti eiturlyfja, aðeins 41 árs.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson