Conchita Wurst, sem sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, segist líta svo á að sigur sinn sýni að fólk sé tilbúið til að taka skref í átt til framtíðar. Hún segist afar ánægð með sigurinn.
Wurst segist hafa vonað heitt og innilega að sér tækist að sigra í keppninni. Draumurinn hafi ræst og hún hafi hreppt sigur. Hún segist vart eiga til orð til að lýsa gleði sinni.