Vill hætta í þáttunum

Kendall Jenner.
Kendall Jenner. mbl.is/AFP

Kendall Jenner vill hætta í raunveruleikaþáttunum Keeping Up with the Kardashians, að því er dagblaðið Daily Mail greinir frá.

Hin 18 ára Jenner vill hætta í þáttunum vegna þess að hún hræðist að þeir muni skaða fyrirsætuferil sinn. Hún hefur gengið tískupalla fyrir þekkt merki á borð við Chanel og Givenchy en óttast að raunveruleikaþættirnir muni skaða orðspor sitt sem fyrirsætu.

Samkvæmt samningi er Jenner skuldbundin til að klára tökur á síðustu þáttaröðinni en hefur sagt sig frá því að taka þátt í þáttum byggðum á raunveruleikaþættinum.

Jenner er ekki sú eina sem vill hætta í þáttunum en Rob Kardashian vill einnig segja sig úr þáttunum og segir þá hafa eyðilagt fjölskyldu sína.

Rob Kardashian hefur hætt samskiptum við nokkra meðlimi fjölskyldunnar og mætti meðal annars ekki í brúðkaup Kim Kardashian og Kanyes Wests fyrr á árinu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant