Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af því að Ryan Gosling og kærasta hans, Eva Mendes eiga von á barni. Á Mendes að vera komin 7-8 mánuði á leið samkvæmt slúðurblaðinu Radar Online. Vinur parsins á að hafa sagt við blaðið að óléttan hafi ekki verið plönuð.
Á Mendes raunar að hafa orðið ólétt stuttu eftir að parið hætti saman í vor. Parið tók síðan aftur saman.
Þau kynntust fyrst við upptökur á myndinni The Place Beyond the Pines, fyrir þremur árum síðan. Hefur sambandið verið ansi stormasamt og hættu þau saman í vor eins og áður segir. Nú á Mendes hins vegar að vera flutt inn til Goslings.
Sjá frétt Radar Online