Fræg fyrir ekkert

Adrienne Bailon.
Adrienne Bailon. mbl.is/AFP

Fyrrverandi kærasta Rob Kardashian, Adrienne Bailon, hefur svarað ummælum Kim Kardashian um að hún ætti ekki að tala illa um Kardashian fjölskylduna, að því er vefsíða Daily Mail greinir frá.

Bailon sagði í viðtali við tímaritið Latina að það hún hafi verið í sambandi með einum af fjölskyldumeðlimi Kardashian fjölskyldunnar hafi skaðað feril hennar og merkt hana sem kærustu Rob Kardashian.

Kim Kardashian hellti sér yfir Bailon á Twitter og sagði hana vera að níðast á bróður sínum þegar hann eigi erfitt en hann stríðir við ofþyngd. Einnig sagði hún að það væri kaldhæðnislegt að Adrienne Bailon væri að tala illa um Kardashian fjölskylduna þar sem eina ástæðan fyrir því að hún fékk viðtal í tímariti hafi verið vegna þess að hún væri að tala um Kardashian fjölskylduna.

Bailon hefur nú svarað Kim Kardashian en hún skrifaði á Instagram að frægð og starfsferill sé ekki það sama og að sjálf hafi hún alltaf þurft að vinna fyrir sínu alveg frá því hún var 15 ára. Hún segir einnig að hún hafi aldrei viljað vera fræg fyrir það eitt að vera kærasta einhvers.

Þá talar hún beint til Kim Kardashian þegar hún segir enn fremur á Instagram að maður vilji ekki alltaf vera merktur fyrir það sem maður er frægur fyrir eða þekktur fyrir og vísar þar í skoðun sína að Kardashian fjölskyldan sé fræg fyrir lítið sem ekkert.

Enginn hafði heyrt um Kim Kardashian þangað til að kynlífsmyndband af henni og söngvaranum Ray J lak út en Vivid Entertainment gaf myndbandið út í febrúar árið 2007. Sex mánuðum síðar frumsýndi sjónvarpsstöðin E! nýjan raunveruleikaþátt sem kallaðist Keeping Up With the Kardashians en í dag hafa verið gerðar alls níu seríur af þáttunum.

Kim Kardashian hefur verið gagnrýnd fyrir að feta í fótspor fyrrverandi vinkonu sinnar Paris Hilton en kynlífsmyndband með henni lak einnig út og stuttu seinnta hófust raunveruleikaþættir um líf hennar á sjónvarpsstöðinni MTV sem kölluðust The Simple Life.

Systurnar og móðurinn í Keeping Up With The Kardashians.
Systurnar og móðurinn í Keeping Up With The Kardashians. Ljósmynd/Keeping Up With The Kardashians
Myndin sem Adrienne Bailon birti á Instagram.
Myndin sem Adrienne Bailon birti á Instagram. Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant