Hélt veislu fyrir brúðkaupið

Amal Alamuddin, unnusta George Clooney.
Amal Alamuddin, unnusta George Clooney. mbl.is/AFP

Amal Alamuddin mætti í veislu fyrir komandi brúðkaup sitt og George Clooney, að því er dagblaðið New York Post greinir frá.

Veisluna hélt leikkonan Ellen Barkin síðasta fimmtudag fyrir Alamuddin en veislan samanstóð af glæsilegum en rólegum kvöldverði á heimili leikonunnar í New York.

Samkvæmt heimildum New York Post mættu bæði Amal Alamuddin og móðir George Clooney ásamt fleiri gestum.

Barkin kynntist George Clooney við tökur á kvikmyndinni Oceans Thirteen og sagðist nýverið vera stolt af því að hafa eitt sinn sofið hjá honum. George Clooney neitaði hins vegar þeim orðrómi að þau hefðu átt í ástarsambandi en segir þau hafa verið góða vini.

Alamuddin og Clooney trúlofuðu sig í apríl á þessu ári en hyggjast giftast á Ítalíu í september en George Clooney hefur meðal annars beðið söngkonuna Lönu Del Rey um að syngja í brúðkaupi þeirra en hún hefur enn ekki gefið þeim svar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant