Kærasta Chris Brown, Karrueche Tran, gerði grín að dóttur Jay Z og Beyoncé Knowles í þættinum 106 & Park, að því er vefsíða TMZ greinir frá.
26 ára fyrirsætan var kynnir í þættinum 106 & Park sem birtur er á vefsíðu BET.com ásamt Brandon Broady. Í þættinum ræddu þau um MTV tónlistarverðlaunahátíðina og gerði Karrueche Tran grín að hári Blue Ivy, dóttur Jay Z og Beyoncé Knowles.
Í þættinum sagði Karrueche Tran að foreldrar Blue Ivy greiddu aldrei hárið á henni og grínaðist með það að dóttirin hefði hárið á tónlistarverðlaunahátíðinni eins og hún vaknaði með það.
Grínið fór ekki vel í aðdáendur Beyoncé Knowles og Jay Z en þau eru eitt heitasta og valdamesta par í tónlistarbransanum í dag.
Karrueche Tran baðst afsökunar á ummælunum og sagði ummælin hafa verið fyrirfram skrifuð fyrir þáttinn og að framleiðendur þáttarins bæru ábyrgðina.