Síðasti þátturinn af Chelsea Lately

Þáttastjórnandinn og grínistinn Chelsea Handler.
Þáttastjórnandinn og grínistinn Chelsea Handler. mbl.is/AFP

Þáttastjórnandinn Chelsea Handler sýndi síðasta þátt sinn á sjónvarpsstöðinni E! á dögunum þar sem stjörnur á borð við Jennifer Aniston, Miley Cyrus og Söndru Bullock kvöddu hana í þættinum.

Að því er vefsíða Washington Post greinir frá var Chelsea Handler eina konan með spjallþátt sem sýndur er seint á kvöldin í Bandaríkjunum en hún kvaddi starfið á þriðjudaginn síðasta.

Þátturinn Chelsea Lately hefur staðið í sjö ár og sagðist Chelsea Handler vera stolt af sjálfri sér fyrir þáttinn.

Í viðtali við Howard Stern fyrr á árinu sagði Chelsea Handler E! sjónvarpsstöðina ekki vera með neinar frumlegar hugmyndir og sagði hana vera misheppnaða. Þegar samningur hennar rann út hjá sjónvarpsstöðinni dreifði umboðsmaður hennar þeim boðskap að hún væri að leita að hvaða tækifæri sem er sem byðist í sjónvarpi.

Henni gafst það tækifæri að halda áfram með þátt sinn á Netflix á næsta ári þar sem hægt verður að hala niður þáttum hennar í gegnum netið.

Einnig komu fram þau 50 Cent og Ellen Degeneres í síðasta þættinum af Chelsea Lately.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant