Gloria Cevallos, fyrrverandi heimilishjálp söngkonunnar LeAnn Rimes og eiginmanns hennar, Eddie Cibrian, hefur nú kært hjónin fyrir að reka sig.
Cevallos vann sem heimilishjálp ásamt tveimur öðrum konum á heimili þeirra Rimes og Cibrian á sínum tíma. Cevallos segir þáverandi samstarfskonur sínar hafa lagt sig í einelti og kallað sig uppnefnum. Þegar móðir Cibrian hvatti hann til að taka á málunum ákvað hann að reka Cevallos. Þessu er greint frá á TMZ.com.
Cevallos fer nú fram á að hjónin greiði henni skaðabætur og laun þar til hún finnur sér nýtt starf.