Gekkst undir leysimeðferðir til að losna við húðflúr

Leikkonan Eva Longoria er sögð hafa gengist undir nokkrar sársaukafullar leysimeðferðir til að losna við þau húðflúr sem hún er með. Ástæðan fyrir því að hún vill nú losna við húðflúrin er sú að kærasta hennar, Jose Pepe Antonio Baston, líkar ekki vel við þau.

Longoria hefur fengið sér nokkur húðflúr í gegnum tíðina en vill nú losna við þau öll, meðal annars kross á mjóbakinu og tölustafinn níu sem táknar fyrrverandi eiginmann hennar, Tony Parker.

„Pepe er alltaf að segja henni að hún yrði fallegri og fágaðri án húðflúra,“ sagði heimildamaður OK! tímaritsins.

Longoria er sögð vera sammála kærasta sínum og sér eftir að hafa látið húðflúra sig. „Hún er ekki hrifin af húðflúrum lengur, hún sér eftir að hafa gert þetta á sínum tíma,“ sagði vinkona Longoria.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant