Oscar de la Renta látinn

Oscar de la Renta
Oscar de la Renta AFP

Bandaríski tískuhönnuðurinn Oscar de la Renta er látinn, 82 ára að aldri. Hann greindist með krabbamein árið 2006 en ekki hefur verið upplýst hvert banamein hans var. De La Renta var einn þekktasti tískuhönnuður Bandaríkjanna en hann sá meðal annars um að klæða fyrrverandi forsetafrúr Bandaríkjanna, þær Jackie Kennedy og Hillary Clinton.

De La Renta hannaði meðal annars brúðarkjól Amal Clooney nú fyrir skömmu er hún gekk að eiga eiginmann sinn, George Clooney, eins og frægt er, í Feneyjum í síðasta mánuði.

Oscar de la Renta fæddist í Dóminíska lýðveldinu árið 1932. Hann fór að heiman átján ára gamall, til Madríd á Spáni, til þess að læra myndlist. En hann var fljótur að skipta um starfsvettvang og hóf samstarf með spænska hönnuðinum Cristobal Balenciaga.

De la Renta lést á heimili sínu í Connecticut og í tilkynningu frá stjúpdóttur hans, Elizu Reed Bolen, og eiginmanni hennar, Alex Bolen, var hann umvafinn fjölskyldu og hundum sínum á dánarbeðnum.

Oscar de la Renta og Oprah Winfrey
Oscar de la Renta og Oprah Winfrey AFP
Oscar de la Renta ogl Karlie Kloss
Oscar de la Renta ogl Karlie Kloss AFP
Amal Alamuddin og George Clooney á brúðkaupsdaginn en hún klæddist …
Amal Alamuddin og George Clooney á brúðkaupsdaginn en hún klæddist hönnun Oscars de la Renta
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson