Karlmaðurinn ætti alltaf að borga

Diane Kruger og Joshua Jackson.
Diane Kruger og Joshua Jackson. mbl.is/AFP

Leikarinn Joshua Jackson kveðst vera gamaldags þegar kemur að því að heilla kvenpeninginn. Hann trúir því t.d. að karlmenn eigi alltaf að borga þegar þeir fara á stefnumót.

„Nei, ég get ekki gert það,“ sagði Jackson aðspurður hvort hann myndi einhvern tímann láta kærustu sína, Diane Kruger, borga reikninginn á stefnumóti. „Nema að hún biðji sérstaklega um það. Karlmaðurinn ætti alltaf að borga reikninginn.“ 

Jackson virðist kunna eitt og annað varðandi ástarsambönd en hann og Kruger hafa verið saman síðan árið 2006.

Jackson segist ekki vita af hverju þau skötuhjú eru ekki gift. „Ég get ekki svarað því. Við erum ekki trúuð og mér finnst ég ekki vera neitt minna skuldbundinn henni þó að við séum ekki gift. Þetta gæti þó breyst með tímanum.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson