Kærastan ljóstraði upp leyndarmálinu á Instagram

Robin Thicke er kominn með nýja kærustu.
Robin Thicke er kominn með nýja kærustu. AFP

Söngvarinn Robin Thicke skildi nýverið við eiginkonu sína, Paulu Patton, en nú virðist hann vera kominn með nýja kærustu. Thicke hefur reynt að halda sambandinu leyndu en ljósmyndir sem nýja konan birti á Instagram ljóstruðu upp leyndarmálinu.

Thicke og Patton skildu formlega í október á þessu ári en Thicke var miður sín eftir skilnaðinn og talaði gjarnan opinberlega um hversu heitt hann elskaði Patton. En nú er hann greinilega búinn að jafna sig.

Nýja kærastan er ung fyrirsæta, hún heitir April Love Geary. Hvorki Thicke né Geary hafa staðfest að þau séu saman en nýjar myndir sem Geary birti á Instagram gefa til kynna að þau verji miklum tíma saman. Myndirnar eru nefnilega teknar á heimili Thickes sem hann deildi eitt sinn með Patton. Húsið var sett á sölu í júlí og þess vegna er auðvelt að gera samanburð á myndunum sem Geary birti og þeim sem eru á fasteignavefnum sem Thicke notast við. Ekki hefur enn tekist að selja húsið en Thicke vill frá rúmar 370 milljónir króna fyrir það. 

Á heimasíðu TMZ má sjá samanburðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler