Fyrsta kótelettan í geimnum

Kótelettan hugumdjarfa náði 25 kílómetra hæð yfir yfirborði jarðarinnar.
Kótelettan hugumdjarfa náði 25 kílómetra hæð yfir yfirborði jarðarinnar. Skjáskot

Hópur vina á Bretlandi ákvað að senda lambakótelettu út í geiminn til að vekja athygli á bók sem einn þeirra skrifaði og ber titilinn „Kjötgeimur“. Kótelettan var fest við gaffal og myndavél og var svo send á loft með veðurloftbelg.

Alls náði tandoori-kótelettan, sem var fengin af indverskum veitingastað í London sem styrkti uppátækið, 25 kílómetra hæð. Kjötstykkið og myndavélin komu á endanum niður á akri í Dorset á Suðvestur-Englandi þar sem kótelettan mætti örlögum sínum undir þreskivél bónda.

Afraksturinn af uppátækinu má sjá á myndbandinu hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson