Þvertekur fyrir að hafa verið lögð í einelti

Kendall Jenner.
Kendall Jenner. AFP

Fyrirsætuferill raunveruleikastjörnunnar Kendall Jenner er komin á flug en fregnir herma að Jenner hafi ekki átt sjö dagana sæla í vinnunni undanfarið. Sá orðrómur hefur komist á kreik að aðrar fyrirsætur hafi lagt Jenner í einelti bak við tjöldin vegna öfundsýki.

Jenner segir orðróminn ósannan. „Ég heyri kjaftasögur um að stelpur hafi strítt mér og drepið í sígarettum í drykknum mínum baksviðs en ekkert af þessu gerðist. Það hafa allir verið almennilegir við mig. Það hefur engin stelpa verið illkvittin við mig ... hingað til,“ sagði Kendall Jenner í viðtali við tímaritið Dazed & Confuzed.

Jenner segir þá alla í fjölskyldunni sinni hafa sýnt sér mikinn stuðning. „Fyrir hverja einustu tískusýningu fæ ég skilaboð frá þeim. Ég gæti ekki beðið um betri viðbrögð.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant