Svo virðist sem raunveruleikastjarnan Bruce Jenner hafi ekki verið að senda sms heldur reykja þegar hann lenti í árekstri í gær sem kostaði konu lífið. Þessu heldur bandaríski slúðurmiðillinn TMZ fram.
Áður hafði miðillinn greint frá því að lögregla í Los Angeles ætlaði að fá heimild til að skoða farsímagögn Jenner til að komast að því hvort hann hafi verið að senda sms-skilaboð.
Slysið varð á hraðbraut í Los Angeles og slapp Jenner lítið slasaður.