Seinheppnasti þjófur sögunnar?

Maðurinn býr sig undir að kasta múrsteininum.
Maðurinn býr sig undir að kasta múrsteininum. Skjáskot af Youtube

Maður hendir múrsteini í bílrúðu. Múrsteinn endurkastast af rúðunni. Múrsteinn lendir á manni. Maður rotast.

Þannig má lýsa í hnotskurn atburðarásinni er þjófur reyndi að brjótast inn í bíl að næturlagi á Írlandi. Maðurinn hafði gengið milli bíla um hríð er hann sá einn sem honum leist vel á. Tók hann þegar til við að reyna að brjóta rúðu á bifreiðinni. Hann gerði nokkrar tilraunir. Og þetta endaði ekki vel. 

Í raun lauk málinu ekki þá. Samkvæmt írska blaðinu Independent kom eigandi bílsins, bareigandi á svæðinu, út og sá manninn liggja meðvitundarlausan í blóði sínu. Er lögreglan kom manninum svo til aðstoðar brást þjófurinn hinn versti við og sagði bareigandann hafa ráðist á sig. Bareigandinn gat þó sýnt fram á annað með upptöku úr eftirlitsmyndavél.

Hann segist enn vera að hlæja.

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/BbeDgiou6-U" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant