Kastljós kvöldsins hefur vakið mikla athygli en þar var fjallað um skottulækningar á Íslandi sem beint er gegn langveiku og oft dauðvona fólki. Tveir aðilar fóru fram á lögbann á þættinum þar sem mikið myndefni var tekið upp með falinni myndavél en sýslumaður hafnaði kröfunni stuttu fyrir útsendingu. Tístarar landsins lét ekki sítt eftir liggja og tjáði sig óspart um málið.
Flestir voru á því að lögbannskrafan hefði komið í bakið á skottulæknunum.
Hvernig tryggiru að allir landsmenn horfi á #Kastljós? Jú lögsækir þá samdægurs í tilraun til að bjarga eigin skinni frá að vera "exposed"
— Ingimar (@Ingimar90) March 3, 2015
Lögbannskrafan góð auglýsing. Væri ekki að horfa núna ef hún hefði ekki komið fram. #Kastljós
— Ingi Hauks (@ingihauks) March 3, 2015
Stefán var óhræddur við að varpa fram stóru spurningunum.
En jónaður bjór? Jónabjórinn í ár? #kastljos
— Stefán Máni (@StefnMni) March 3, 2015
Í ljós kom að annað fyrirtækið er með stólpípusett á gjafaverði.
Það er aldeilis gjafaverð hjá fyrirtækinu sem Kastljósið fjallar um í kvöld #kastljos #kastljós pic.twitter.com/4cWhVLg2nN
— Magnus Gudmundsson (@maggiperan) March 3, 2015
Þorsteinn benti á að sölufólkið hefði kannski einnig látið glepjast.
Eru snákaolíusölufólk ekki líka oft fórnarlömb? Þau kaupa dýr tæki, glundur, fara í skóla og trúa þessu 100% #kastljos
— Þorsteinn Másson (@steinimas) March 3, 2015
Pendúllinn vakti mikil viðbrögð enda greinilega stórfenglegt tæki.
Ég þarf að fá mér svona pendúl til að taka stórar ákvarðanir í lífinu #Kastljós #pendúllinn
— Dagmar Sigurðard. (@dagmarsig) March 3, 2015
Er hægt að nota þennan pendúl á djamminu, þar sem hann finnur alla strauma milli fólks? #kastljós
— H. Hafsteinz (@Hafsteinz) March 3, 2015
Héðan í frá mun ég alltaf spyrja pendúl svara við spurningum lífsins. #kastljós
— Sigurður Búi Rafnss. (@siggibui) March 3, 2015
Þessi er sá eini sem má spyrja pendúl #kastljós pic.twitter.com/NGQxdvSRVN
— Þórarinn Hjálmarsson (@thorarinnh) March 3, 2015
Ég veit ekki með ykkur en ég er seldur. Komið með diskana, filmuna og jónaða vatnið. Ég vil ekki vera þræll pendúlsins. #Kastljós
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) March 3, 2015
Hrafn tengdi umfjöllunina við bólusetningarumræðuna.
Ef að nálin er geymd í jónuðu vatni veldur bólusetning ekki einhverfu. #vísindi #Kastljós
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) March 3, 2015
En Stefán Óli sá fyrir sér skelfilegar matarsamsetningar.
„Hunang og lifur er náttúrulega nátengt.“ Note to self: Aldrei fara í matarboð til Allt hitt ehf. #kastljós
— Stefán Óli Jónsson (@St_Oli) March 3, 2015
Og Bragi Valdimar var með svörin á reiðum höndum.
Orð dagsins er „skrípafífl“ (hk): loddari, svikari; skrumari; vindbelgur. #kastljós
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) March 3, 2015