Með töfrahanska eins og Elsa

Elsa drottning.
Elsa drottning. Mynd/Disney

Tveggja ára bresk telpa þarf meðal annars að nota sérstaka hanska til þess að koma í veg fyrir að líkami hennar frjósi. Telpan, Gracie Hughes, er með sjúkdóm sem nefnist Raynaud's og er felur í sér staðbundna truflun á blóðflæði sem kemur oftast fram í fingrum en getur einnig komið fram í fótum og víðar á líkamanum líkt og segir á vefsíðunni Doktor.is.

Fram kemur í frétt breska dagblaðsins Daily Telegraph að verði Gracie kalt bláni hún smám saman ef ekki er brugðist við því. Fyrir vikið hafi hún fengið sérstaka hanska sem fyrr segir, sem endurvarpa 95% hitans úr höndum hennar aftur til baka. Haft er eftir móður hennar Laurie að telpan sé mikill aðdáandi teiknimyndarinnar Frozen, en þar er þarf Elsa prinsessa, og síðar drottning, að ganga með sérstaka töfrahanska til þess að koma í veg fyrir að hún frysti umhverfi sitt. Þegar Gracie hafi verið bent á þessa samlíkingu hafi hún verið mjög ánægð.

Sjúkdómurinn gerir það að verkum að venjulegar athafnir verða erfiðar fyrir Gracie og foreldra hennar. Líkt og að fara út úr húsi. Laurie segir að kappklæða þurfi telpuna og hafa hana vafða inn í hitateppi í bílnum. Þá megi hún ekki borða ís eða drekka mjög kalda drykki. Vetrarmánuðirnir séu verstir. Þá geti hún ekki farið út úr húsinu. Hita verði húsið stöðugt við þær aðstæður. Þá sé erfitt að setja hana í bað. 

Gracie var greind með sjúkdóminn fyrir ári síðan en erfiðlega gekk að fá niðurstöðu. Hún er nú smám saman að læra að lifa með honum og segir Laurie að Elsa hafi hjálpað mikið í þeim efnum. „Gracie er að komast á þann aldur að hún skilur ekki hvers vegna hún þurfi alltaf að vera með hanska og ég hef sagt henni að hún sé eins og Elsa og Elsa sé sérstök. Þá tekur hún gleði sína á ný. Hún elskar að vera eins og Elsa, eins og raunveruleg drottning. Kannski vex hún upp úr því einn daginn en ég vona að þegar hún verður eldri geti hún farið út og lifað eðlilegu lífi.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler