Vinna að nýrri hljómplötu

Liam Payne, Niall Horan, Louis Tomlinson, Zayn Malik og Harry …
Liam Payne, Niall Horan, Louis Tomlinson, Zayn Malik og Harry Styles skipuðu sveitina One Direction en nú er Zayn Malik hættur. AFP

Niall Horan, einn meðlimur One Direction, greindi frá því á Twitter í gær að hljómsveit hans væri nú byrjuð að vinna að hljómplötu númer fimm.

Það hefur gengið á ýmsu síðan einn meðlimur hljómsveitarinnar, Zayn Malik, hætti í bandinu í seinustu viku en hljómsveitin er greinilega hvergi nærri hætt. „Settist niður á fund með útgáfufyrirtækinu, við vorum að skipuleggja okkur fyrir næstu plötu. Get ekki beðið,“ skrifaði Horan meðal annars.

Malik greindi frá því á föstudaginn að hljómsveitin myndi halda ótrauð áfram þrátt fyrir að hann væri hættur. „Hljóm­sveit­in hef­ur stutt við bakið á mér. Þeir hafa verið al­menni­leg­ir í sam­bandi við þetta. Og þeir skilja að þetta pass­ar ekki við mig leng­ur,“ út­skýrði Malik. „Ég held að þeir verði ágæt­ir,“ sagði Malik í viðtali við The Sun.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant