Á tímum samfélagsmiðla og selfie-mynda reyna margir að koma með frumlegar hugmyndir til að gera eftirminnileg atvik í lífinu enn eftirminnilegri og þá helst með að taka þau einnig upp til að setja á netið. Oft á tíðum ná slík myndbönd fram samblöndu af gleði og dramatík þannig að ekki er óalgengt að fram komi eins og eitt lítið tár.
Í öðrum tilfellum geta þessi atvik algjörlega misheppnast og það er tilfellið þegar Daniel bað kærustuna sína um að koma með sér á útskrifarballið (e. prom).
Daníel hafði komið upp skiltum meðfram vegi sem þau keyrðu og gerði kærastan grín að aðferðinni við að bjóða einhverjum á ballið með þessum hætti þangað til hún uppgötvaði að það var einmitt Daniel sem var að bjóða henni. Sjón er sögu ríkari, en hægt er að lofa einstaklega miklum aulahrolli.