Fjölskyldan stolt af Bruce Jenner

Bruce Jenner
Bruce Jenner

„Ekki aðeins gat ég kallað hann eiginmann minn í 25 ár og föður barna minna, heldur get ég nú einnig kallað hann hetjuna mína,“ skrifaði Kris Jenner, fyrrverandi eiginkona Bruce Jenner, á Twitter-síðu sína í dag.

Eins og fram hefur komið kom ólymp­íug­ull­verðlauna­haf­inn og raun­veru­leika­stjarn­an út sem trans­kona í nótt. Fjölmargir hafa sýnt henni stuðning og samfélagsmiðlar hafa logað í allan dag.

„Hvað öll­um ásetn­ingi og til­gangi líður er ég kona,“ sagði Jenner í viðtali, sem beðið hafði verið með eft­ir­vænt­ingu, við Dia­ne Sawyer á ABC rás­inni .

Jenner, sem er 65 ára, seg­ist hafa átt í bar­áttu við kyn­vit­und sína frá því hún var barn.

Jenner er stjúpfaðir raunveruleikastjarnanna Kim, Kourtney og Khloe Kardashian og var tíður gestur í þáttunum „Keeping Up with the Kardashians“. Einnig eru bræður systranna, þeir Robert og Brandon, stjúpsynir hennar og loks eru Kylie og Kendall Jenner dætur hennar. Öll börn og stjúpbörn Jenners hafa lýst yfir stuðningi sínum við hana í kjölfar viðtalsins.

Yngsta dóttirin, Kylie, viðurkennir þó að þetta hafi reynst henni erfitt og hún muni tjá sig síðar um það - en hún sé hins vegar afar stolt af föður sínum.

<a href="https://instagram.com/p/14H8rkO6f1/" target="_top">Proud son.</a>

A photo posted by Brandon Jenner (@brandontjenner) on Apr 24, 2015 at 4:57pm PDT

You have always been a role model to me and now more than ever, I look up to you. LOVE YOU‼️‼️👐👐

Vanga­velt­ur um „kynátt­un­ar­vanda“ Jenner hafa fyllt slúðurmiðla mánuðum saman þrátt fyr­ir að hún hafi sjálf ekki tjáð sig op­in­ber­lega um kyn sitt fyrr en nú. Hafa miðlarn­ir m.a. fært frétt­ir af því að hún hafi sést með rakaða út­limi, sítt hár í tagli og í íþrótta­brjósta­hald­ara und­ir stutterma­bol og þótt það vís­bend­ing­ar um að hún væri í kyn­leiðrétt­ing­ar­ferli.

Eitt af því sem talið var að Jenner myndi greina frá í viðtali sínu við Sawyer var nýtt nafn henn­ar sem kona. Hún sagðist skil­greina sig und­ir per­sónu­for­nafn­inu „hún“ en að hún hefði ekki valið sér sér­stakt kven­manns­nafn. Þrátt fyr­ir þetta notaði Sawyer end­ur­tekið per­sónu­for­nafnið „hann“ í gegn­um viðtalið og marg­ir erlend­ir miðlar hafa leikið það eft­ir í um­fjöll­un sinni um Jenner í dag.

Fjölmargar stjörnur hafa lýst yfir stuðningi við Jenner í dag og virðast margir taka upp sama sið og nota persónufornafnið „hann“. Stuðningurinn leynir sér þó ekki.

Bruce Jenner í opinskáu viðtali við Diane Sawyer.
Bruce Jenner í opinskáu viðtali við Diane Sawyer. youtube.com
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant