„Pabbi er með brjóst“

Bruce Jenner.
Bruce Jenner. AFP

Fyrrum eiginkona Bruce Jenner, Linda Thompson, segir frá því í pistli fyrir Huffington Post hvernig hjónaband hennar molnaði vegna kynvitundar Jenner.

Hún lýsir því hvernig hún fylgdist með maka sínum kljást við að upplifa sig sem konu í karlmannslíkama.

„Ég hef haldið leyndarmálum hans fyrir mig og myndi hafa tekið það sem hann treysti mér fyrir í gröfina hefði hann ekki opnað sig,“ skrifar Thompson. Eins og flestir vita opnaði Jenner sig í viðtali við Diane Sawyer á dögunum. Hjónabandi Jenner og Thompson lauk árið 1986 en það hafði þá staðið yfir í fimm ár.

Parið eignaðist tvo syni, Brandon og Brody Jenner og segir Thompson Jenner fyrst hafa játað fyrir henni leyndarmál sitt þegar sá yngri, Brody, var 18 mánaða.

„Ég héld í alvöru að hann myndi mögulega segja mér frá því að hann hefði haldið framhjá á ferðalögum sínum En það var ekki það sem hann vildi játa fyrir mér. Bruce sagði mér að hann upplifði sig sem konu. Ég skyldi ekki nákvæmlega hvað það þýddi og spurði hann: Hvað meinarðu með því að þú skilgreinir þig sem konu? Ég spurði: Hvað þýðir það?“

Thompson segir Jenner hafa svarað að þó svo að karlmannleg ímynd starði tilbaka úr speglinum þætti Jenner það eiga að vera kona.

Thompson leitaði sér hjálpar til að reyna að skilja upplifanir maka síns og fann sálfræðing sem sérhæfði sig í málefnum transfólks.

„Við byrjuðum að fara til hennar strax. Hún var indæl kona sem afar rólega og eins varlega og hún gat, sráfelldi mig með upplýsingum sem brutu hjarta mitt í milljón mola,“ skrifar Thompson.

„Bruce íhugaði að ferðast út fyrir landið, hugsanlega til Danmerkur, til þess að gangast undir kynleiðréttingar aðgerð og koma aftur til Bandaríkjanna sem kvenmaður,“ segir Thompson. „Ég spurði Bruce: Hvað um börnin? Hann hugsaði að hann gæti kannski komið aftur inn í líf þeirra sem Heather frænka.“

Thompson segir Jenner hafa gert það sem hann gat til að breyta útliti sínu, losað sig við skeggvöxt og bringuhár með rafmagnsmeðferð og tók kvenhormón.

„Eitt óbærilega sársaukafullt hár í einu var tekið með rafmagni. Óhugsandi. Bruce byrjaði að fá brjóst vegna kvenhormónana sem hann sprautaði í sig,“ skrifar Thompson.

„Einn daginn, eftir að hafa eitt tíma heima hjá Bruce, komu strákarnir báðir inn í eldhús og sögðu við mig; Mamma við sáum pabba koma nakinn út úr sturtunni og pabbi er með brjóst!“ skrifar Thompson. Þann dag segist hún hafa byrjað að reyna að vernda Bruce með því að útskýra það sem gerðist með öðrum hætti en satt var.

„Það er óhugsandi fyrir okkur sem líður vel í eigin skinni að ná fyllilega hverskonar fangelsun það hlýtur að vera að vera fæddur í vitlausum líkama,“ segir Thompson. Parið skildi eftir að hafa sótt hjónameðferð í sex mánuði þar sem hún gat ekki séð fyrir sér að vera gift konu.

„Það var ákaflega erfitt fyrir mig að skilja og aðlaga líf mitt að þeirri uppgötvun að maðurinn sem ég giftist, hinn karlmannlegi, gullfallegi, fullkomni yndislegi hasarkroppur af manni, myndi ekki lengur vera til.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson