Svíþjóð sigraði í Eurovision

Mans Zelmerlow fagnar.
Mans Zelmerlow fagnar. AFP

Svíþjóð er sigurvegari í Eurovision 2015.

Söngvarinn Måns Zelmerlöw söng sig inn í hjörtu Evrópu með frammistöðu sinni í keppninni en hann flutti lagið „Heroes“. Úrslitin urðu ljós áður en stigagjöfinni lauk og var Zelmerlöw ákaft fagnað. Rússland lenti í öðru sæti og Ítalía í því þriðja.

Það þýðir að Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva mun fara fram í Svíþjóð á næsta ári. Þetta er sjötti sigur Svía í keppninni sem þýðir að þeir eiga nú næstflesta sigra í Eurovision í gegnum tíðina á eftir Írum sem hafa sigrað sjö sinnum.

„Við erum öll hetjur,“ sagði Zelmerlöw þegar hann tók við bikarnum.

Þess má geta að Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, lofaði fyrr í kvöld að mæta í leðurbuxum í vinnuna kæmi til þess að Svíþjóð sigraði. Nú er að standa við stóru orðin, Dagur.

AFP
AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant