Lokamót Þrekmótaraðarinnar fer fram á Varmárvelli í Mosfellsbæ um næstu helgi þar sem skipuleggendur segja að „Strongman-fílingur“ verði í þrautunum sem keppendur fá að takast á við. Aukahlutir í þrautunum verða sandpokar, hjólbörur og „prowlerar“ en þyngdir sem venjulegt fólk ætti að ráða við.
Hægt er að undirbúa sig fyrir mótið á sérstökum aukaæfingum en Sveinbjörn Sveinbjörnsson, skipuleggjandi, segir að gott sé að undirbúa sig aðeins fyrir átökin þar sem æfingarnar séu örlítið meira krefjandi en á fyrri mótunum.
Hægt er kynna sér mótið nánar á vef Þrekmótaraðarinnar.
Hér fyrir neðan má sjá kynningu á þrautunum á Útileikunum.
Fleiri kynningar eru á youtube-rás Þrekmótaraðarinnar.