Spennuþrungin stikla hefur nú verið frumsýnd úr nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest. Myndin fjallar um örlagaríka fjallgöngu á tindinn fræga og skartar hún stjörnuliði leikara. Þ.á.m. eru Jake Gyllenhaal, Keira Knightley, Robin Wright og Josh Brolin.
Í viðtali við mbl.is í fyrra sagði Baltasar tökur á myndinni sennilega vera „það erfiðasta sem hann hefði gert“, en meðan á tökum stóð varð mannskætt slys í fjallinu þar sem sextán sjerpar létu lífið í snjóflóði. Myndin verður frumsýnd í seinni hluta septembermánaðar, en upphaflega stóð til að frumsýna hana í febrúar. Talið er að tímanum hafi verið breytt vegna frumsýninga annarra stórra kvikmynda sem einnig voru dagsettar í febrúar.
Fréttir mbl.is:
Sjerparnir færa þjóðinni björg í bú