Slúðurmiðlar vestanhafs hafa í dag verið að birta myndir af raunveruleikastjörnunni Scott Disick og konu sem virðist vera nýja kærastan hans. Disick hefur átt í ástarsambandi við Kourtney Karsashian í tæp tíu ár með hléum en ekki er vitað hvort þau eru formlega hætt saman.
Konan sem sést á myndunum með Disick heitir Chloe Bartoli, hún er 25 ára og starfar sem stílisti. Myndirnar af þeim voru teknar í gær í Frakklandi, á þeim sjást þau Disick og Bartoli láta vel hvort að öðru.
Samkvæmt frétt Life & Style eru þau Disick og Kourtney Kardashian í raun og veru ekki hætt saman. Þar er Disick svo sakaður um að hafa haldið framhjá Kourtney með að minnsta kosti 100 konum í gegnum árin.
Kourtney er þessa stundina stödd í Los Angeles með börnunum þeirra þremur sem eru á aldrinum sex mánaða til fimm ára.
„Hann stundaði kynlíf með vinkonu minni“