Þekkir þú konurnar?

Þekkir þú þessa konu?
Þekkir þú þessa konu? Facebooksíða Megan Abell

Bandarískur ljósmyndari, Meagan Abell, leitar nú tveggja kvenna sem hún fann myndir af á gamalli filmu í verslun sem selur notaðar vörur. Hún biðlar til fólks um allan heim að skoða myndirnar og kanna hvort það kannist við dularfullu konurnar tvær.

Meagan Abell var að fara í gegnum myndir sem hún fann í verslun í Richmond, Virginia þegar hún fann fjórar slidesmyndir sem henni þóttu áhugaverðar.

Í viðtali við BBC segist Abell hafa brugðið við þegar hún skoðaði myndirnar betur vegna þess hversu fallegar þær voru. „Mig langar mikið til þess að finna konurnar eða ljósmyndarann sem tók þær,“ segir Abell en hún telur að myndirnar hafi verið teknar á sjötta eða sjöunda áratug síðustu aldar miðað við klæðaburð kvennanna.

Abell hefur sett á laggirnar leit á á netinu til þess að finna konurnar og eiganda filmunnar. Henni miðar ágætlega við leitina en hún hefur fengið ábendingu um að þær séu teknar á Dockweiler á ströndinni Playa del Ray í Kaliforníu. Myndir sem stúlka sem þekkir til þar sendi henni benda til þess að landslagið sé nákvæmlega það sama. Hún telur að það hljóti að vera atvinnuljósmyndari sem tók myndirnar vegna gæða þeirra og filmutegundarinnar sem var ekki í almannaeigu á þessum tíma.

Endilega skoðið myndirnar og ef þið hafið einhverjar upplýsingar um þær hafið samband Abell hér.

Facebooksíða Megan Abell
Facebooksíða Megan Abell
Þekkir þú þessa konu?
Þekkir þú þessa konu? Facebooksíða Megan Abell
Þekkir þú þessa konu?
Þekkir þú þessa konu? Facebooksíða Megan Abell
Þekkir þú þessa konu?
Þekkir þú þessa konu? Facebooksíða Megan Abell
Facebooksíða Megan Abell
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant