Stal Bangsímon-bíl

Maðurinn sést hér keyra rólega um verslunarmiðstöðina á bílnum.
Maðurinn sést hér keyra rólega um verslunarmiðstöðina á bílnum. Skjáskot/Youtube

Karlmaður í Hvíta-Rússlandi hefur verið handtekinn fyrir að stela Bangsímon-bíl úr verslunarmiðstöð í byrjun maí. Myndband úr eftirlitsmyndavélum sýnir manninn keyrandi um á leikfangabílnum.

Í myndskeiðinu sést maðurinn keyra í rólegheitum út á meðan hann talar í símann. Lögreglan lýsti eftir fólki sem gæti vitað eitthvað um þetta mál, og rúmum tveimur mánuðum eftir atvikið er sökudólgurinn fundinn.

Samkvæmt hvítrússneskum fjölmiðlum gaf verkamaður sig fram við lögreglu og sagðist vera sá seki. Hann hefði verið mjög drukkinn þegar atvikið átti sér stað og myndi ekki hvar hann losaði sig við Bangsímon-bílinn. Bíllinn er ennþá ófundinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant